Kaerleikshvetjandi blogg

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Höf jrk VANDRÆÐI
Afstaða okkar til hvers kyns báginda er misjöfn eins og gengur. Það sem sumum okkar þyki ekkert tiltökumál vandræða, eiga önnur okkar erfitt með að sætta sig við og vinna úr. Auðvitað er mismikið á okkur lagt og við sennilega misjafnlega hæf og sterk til að kljást við ýmis konar krögggur og klípur. Við getum auðveldlega staðið ráðþrota frammi fyrir því, sem okkur þykir óyfirstígan­legt og torvelt.Ef þannig ára innra með okkur er áríðandi að við séum bjartsýn. Við getum nefnilega valið að láta í minni pokann fyrir því sem við sjáum ekki tilgang í og þykir óréttlát og framandi, alveg eins og við getum valið að sigrast á því. Ef við stöndum í þeim staðreyndarsporum að hafa tilfinningu þess, að við vitum ekki hvernig við eigum að bregðast við örðugleikum, er ágætt að ígrunda vel og af einlægni hvað það raunverulega er, sem við sjáum okkur ekki fært að leysa. Við fyrstu sýn geta nefnilega einföld atvik eða óvenjulegar kringum­stæður virst torveldar viður­eignar og alls ekki auðveldar til úrlausnar.En ef við gefum okkur tíma og færi í friðsemd, til að reyna að skilja tilgang þess sem hendir okkur, er ekki ósennilegt að við getum náð járænum árangri og komið okkur með fyrirhöfn og fórnum í gegnum ástandið eða atburðarásina. Vitaskuld kemst ekkert okkar hjá því að finna einhvern tíma til van­máttar í vandræðum. Það er í sjálfum sér ákaflega skiljanlegt. Best er, í þannig aðstæðum, að okkur auðnist að þiggja t.d. vináttuþel þeirra, sem kjósa að auðvelda okkur að takast á við þá innri neyð, sem við getum verið gripið af, vegna mismunandi aðþrengsla. Iðulega er þó staðreynd málsins sú, að við vitum ekki hvernig við eigum að nálgast þá sem líða. Það er líka vitað, að á sama tíma og við eru að takast á við örðugt ástand, þá er eins og við áttum okkur ekki á, hvernig við eigum að sækja stuðning til þeirra sem mögulega vildu auðvelda okkur þrautirnar. Sökum þessara staðreynda er ágætt, að við reynum öll að bæta okkur að þessu sérstaka leyti. Við þurfum í raun að vera vel vakandi,ef hark eða hönk hrjáir þá, sem við vildum eiga þátt í að liði betur. Góður vinur í viðkvæmum vandræðum er líkn í neyð. Ef við lærum ekki bæði að óska eftir stuðningi og hins vegar að veita hann á augnablikum andstreymis, þá er trúlegt að sum okkar gefist óþarflega fljótt upp fyrir fyrirstöðum. Okkur varðar um bágindi annarra, ekkert síður en okkar nánustu. Við erum á járænum þroska­leiðum, sem veljum að rétta öðrum hjálpar­hönd í vandræðum þeirra og við finnum til þess, að góð breytni okkar og óeigingirni gefur okkur aukna hag­sæld og hamingju. Hunsum því skeyt­ingarleysi um velferð þeirra sem minna mega sín, en gefum fremur góðum tæki­færum stuðnings aukið líf.Berum heldur birtu inní líf hvers annars en myrkur.Góðvild og vinarþel eru gulls ígildi.
+++
Höf jrk VENJUR
Mörg okkar hafa alist upp við það frá blautu barns­beini að það skipti máli að rækta aðstæður sínar og athafnir m.a. í gegnum einhvers konar venjur eða sið­hætti. Við sem þannig viðhorfum höfum kynnst höfum iðu­lega þörf fyrir að viðhalda þeim hefðum og siðvenjum sem hafa skapast í sam­félags­­sálinni, á heimilum okkar og í samskiptum okkar við óviðkomandi. Ákveðin íhaldssemi varðandi venjur og siði er okkur flestum að skapi og við leggjum því töluvert upp úr því að viðhalda þeim sam­skipta­legu sjónarmiðum sem eru hefðbundin og fastmótuð. Auk þeirra siða og venja sem við viðhöldum og höfum kynnst í gegnum uppeldi okkar og lærdóm þá komum við okkur sjálf upp ýmsum eftirtektarverðum siðum og hefðum. Ekki síst þeim sem okkur þykja gagnlegar og sérstæðar vegna þess að þær gleðja okkur og gera okkur áhugasamari um lífið og tilveruna.Við erum flest hrifin að þeim sið­háttum sem eiga sér ákveðna forsögu og tengjast einhvers konar hefðum og venjum sem eiga sér t.d. líf í menningu og mannúð.Best er því að við leggjum áherslu á það að viðhalda þeim samfélagslegu hefðum sem eru rótgrónar og uppbyggilegar og hafa menningar- og mannlegt gildi.Ágætt er að viðhalda ekki siðum og vana sem eru í kjarna sínum og rót gallaðir og veikja því andlega vaxtar­mögu­leika okkar og tiltrú á gildi góðra hefða.Hyggilegt er hafna þeim háttum sem eru fordómafullir og öfugsnúnir m.a. sökum þess að þeir hafa úrelst og misst marks í tímans rás.Ákveðnar venjur sem viðgangast í samfélaginu þjóna einungis neisömum tilgangi. Einstaka hefðum fylgir t.d. óþarfa prjál og punt sem getur verið hvimleitt og var­huga­­­vert.Allur hefð­bundinn íburður sem veikir innri gildi tilveru okkar er ekki eftirsóknarvert að viðhalda sökum þess að hann gerir lítið gagn og eflir ekki manngildi okkar eða vilja til lífsins á jákæran og heilbrigðan hátt.Höfnum því þeim hefðum sem eru hégóm­legar og lítil­lækkandi en eflum þær venjur sem eru mannbætandi og jásamar og líklegar til þess að styrkja gott og göfugt mannlíf. Sá bragur sem gerir lítið úr mannlegri reisn og viðkemur lítilmótlegum staðreyndum á að hverfa úr sam­mann­­legum samskiptum vegna þess að hann upphefur okkur á óvitur­legum stöðum og viðheldur venju­legast hégómlegri og lágkúrlegri afstöðu til lífsins og tilverunnar. Hefðir eru af hinum góða svo fremur sem þær eru lyftistöng fyrir jákvæð mannleg markmið og styrkja fjölþættar framfarir. Venjur sem eru vísar og hafa menningarsögulegt gildi eru jákvæðar og mikilvægar. Það er lítið varið í þær venjur sem eru í eðli sínu neirænar og hvimleiðar vegna þess að þær þjóna ytri þáttum tilveru okkar en ekki þeim innri. Jákvæð hefð á rétt á sér ef hún er t.d.mannúð­leg og menn­ingarleg en ekki sú venja sem er m.a. menningar­lega snauð og vanvirðandi fyrir mannlegt eðli og andlega reisn.
+++
HÖF.JRK VANSÆMD
Vart er hægt að komast hjá því einhvern tíma ævinnar að finna sig sneyptan og vanvirtan af mismunandi alvarlegum tilefnum okkar sjálfra eða annarra. Það er t.d. ill­mögulegt fyrir okkur að forðast eða koma í veg fyrir ef einhver ákveður að gera lítið úr persónu okkar.Jafnvel tekur sér það vald að vanvirða hana og gera lítið úr manngildi okkar við okkur sjálf eða aðra. Okkur þykir þannig útreið veru­lega sár og neikvæð, enda óréttmæt með öllu siðferðislega og venjulegast tilkomin af litlu tilefni og ókunnugleika viðkomandi. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til að allir þekki okkur eins og við erum og þaðan af síður er hægt að reikna öllum stundum með réttu mati annarra á manngildi okkar. Hvers kyns blygðunarleysi í samskiptum okkar hvert við annað er þó eins og við vitum líklegt til að draga leiðinda og sársaukadilk á eftir sér sem getur verið erfitt að uppræta og leiðrétta. Það er mikil ósiður að sýna öðrum vansæmd sem getur t.d.legið í háði og svívirðingum, jafnt sem óvirðingu og ómynd hvers konar. Betra er að leggja áherslu á að vera aðgætin og nærfærin í sem flestum samskiptum við aðra og spara frekar en ekki allar óréttmætar og freklegar full­yrðingar fremur en að leyfa sér hvað sem er í viðkvæmri og vandmeðfarinni umfjöllun um aðra. Hvað okkur sjálf varðar er ágætt að reyna að segja ekkert eða framkvæma neitt sem mögulega getur haft í för með sér hneisu eða minnkun fyrir manngildi okkar. Það er mjög auðvelt að kasta til höndunum í öllum samskiptum við aðra, en þegar til lengri tíma er litið er líklegt að öll skammsýni í þessum efnum sem öðrum verði ekki verðugt veganesti og tilhugsunin ein er reyndar neikvæð. Það getur varla verið ástæða til að verða sjálfum sér til minnkunar með því að ástunda rangt atferli. Eðlilegt er að við höfum þann metnað til að bera fyrir sjálfs okkar hönd að leggja okkur fremur eftir því sem er jákvætt, uppbyggi­legt og heiðar­legt, en því sem er neikvætt og niðurrífandi. Þannig kröfur gerðar af okkur sjálfum um það sem varðar fas okkar, framkvæmdir og framferði hljóta alltaf að hafa í för með sér ávinn­inga bæði stóra og smáa og þeir eru verðug og vegleg keppikefli.Vansæmd í hvað mynd sem er verður að teljast óheillavænleg og minnkar möguleika fólks á friðsömum samskiptum. Með þessum ábendingum er t.d. verið að leggja að jöfnu þann skaða sem aðrir verða fyrir af okkar völdum vegna ósæmilegrar umfjöllunar okkar um manngildi þeirra og svo þegar við teljum okkur sjálf verða bitbein rangrar umfjöllunar annarra. Þetta er nefnilega atferli sem er vanvirðandi og ósmekklega vansæmandi. Aftur á móti hljóta þau samskipti sem byggjast upp á gagnkvæmri virðingu og almennri kurteisi að vera eftirsóknarverð og hrífandi.Látum því ekkert fá líf sem getur orðið til vansæmdar fyrir okkur og aðra

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home