Kaerleikshvetjandi blogg

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Ævintýri

Hvar er þögn án hafsjós vandræða
er hvolfist yfir án birtu og yls.
Þegar ríkir sorg og sólarleysi
sefur andinn og grætur án orða.

Opnast hugur og horfir inn í tómið
hvergi neins að vænta, bara myrkur.
Allt svo kalt sem krefst vonar og trúar
í krafti elds sem lifir djúpt í sálinni.

Þegar allt er hljótt, hlýr andvari logar
og heitur strýkur grátbólgna kinn trega.
Í heimi hörku og spennu þrífst tæpast
hugur bjartrar sýnar ævintýra án tals.

Óljóst sér og vonar vanmáttug hið góða
er voldugt breiðir faðminn mót skuggum.
Í afkimum dökkar myndir leynast og tifa
er láta hrærast í skjóli eymdar og vonleysis.

Að hafa ótta af vanmætti ógnar
öllum sem lifa í skjóli hryggðar án athafna.
Að finna frelsi er hvatning sem gleður
því frjáls horfir glaðbeitt fram á veg.

Sól bjartsýni og kærleika er sterkt
sigurtákn sem hrífur gleðivana sál.
Að halla sorgbitnu hjarta að þeim
sem hafa styrk sem ornar í kvíða.

Það er fátt sem fæst án vilja
fegnum án leiða depurðar sem lamar.
Ó, að allt verði gott og gefandi
er grípur hið innra og gleður dapra.

Höf. Jóna Rúna Kvaran
Ort á Hjálpræðishernum sunnudaginn 22.janúar 2006

Þegar maður hugsar um fortíðina og íhugar það sem oft kemur upp, þá er það átakanleg meðferð á einhverfum og sérhverfum (orð sem JRK smíðaði í staðinn fyrir Aspbergers-heilkenni). Vegna heilkenna er viðkomandi afar sérstakir og fyrir flestra hluta sakir liggja vel fyrir höggi. Annað hvort foreldri hrífst oft mjög að viðkomandi og dregur viðkomandi að sér. Oftast eru það feður persónanna af því að þeir eru ekki að eltast við smáatriði eins og mæðurnar. Í örfáum tilvikum sem ég þekki persónulega og ætla að gera að umtalsefni í þessum pistli, hafa feðurnir fengið kynferðislegan áhuga á börnunum. Það á ég við þrjú tilvik sem ég hef verið að vinna að síðan 26.jan.2003. Mig langar til að ræða einhverfan aðila í þessum hópi sem varð fyrir grófri misnotkun í ótrúlega langan tíma án þess að nokkur geðri tilraun til þess að stoppa slíkt af. Þetta var ekki bara af hendi föður heldur líka bróður. Þessi aðili kallar vagínu sína ,,gröf" og hefur enga möguleika að verja sig vegna þess hvað viðkomandi er sértækur, einstakur og allt öðruvísi heldur en venjulegt fólk. Það er því mjög auðvelt að plata slíkan aðila, og draga á asnaeyrunum og fá til athafna sem eru siðlausar, vegna þess að sá sem er einhverfur er svo einlægur og ótrúlega óöruggur, jafnvel kvíðinn eða þunglyndur og óttast höfnun meira en allt annað og vill því ekki svíkja tiltekna aðila ófyrirgefanlegra hluta sem eru óréttlætanlegir og fyrir neðan allar hellur. Séð frá JR eru slíkir aðilar réttdræpir, eða þá ber að fangelsa fyrir lífstíð.
það sem gerist þegar sá einhverfi nálgast unglingsárin er að hann fer að átta sig á að eitthvað mikið er að og fer þar af leiðandi að leita félagskapar sem er fáránlega heimskulegur. Tengist brennivíni og eiturlyfjum með afleiðingum eins og lauslæti, þjófnaðir, ofbeldi, lygar, óheiðarleiki og undansláttur, auk alls þess neikæra (orð eftir JRK) atferli sem hugsast getur af hendi fólks sem er að flýja kynferðislegt ofbeldi yfir í annars konar ofbeldi sem er síst betra í raun, því að samferðamenn viðkomandi, ef þeir eru nógu illa innrættir sem er staðreynd í þesst tilviki, þá er viðkomandi misnotaður svo gróflega að mögulega getur það þýtt fangelsisvist eða aðra þá refsingu sem sá einhverfi kann enga skil á og getur engann veginn varið sig því hann er svo einlægur, og góður og sérstakur í öllum aðal atriðum að hann kann ekki að bera hönd fyrir höfuð sér og tekur því á sigallt ranglætið sem aðrir venjulega skipuleggja og fá þann einhverfa til að framkvæma og sleppa svo fyrir horn, alsælir yfir því að þurfa ekki að bera ábyrgð á gjörðum sínum. Elsku einhverfi aðili! Eins góður og þú ert, fallegur og sérstakur, þá hefur þúi því miður fallið í áfengi sem eru erfðaþættir komnir frá föður sem hætti að drekka fyrir 25 árum síðan eftir að hafa orðið sér til skammar út um allt og hefur síðan gerst fararstjóri með frábærum árangri til lands sem er langt í burtu og fullt af múslimskum aðilum eru viðloðandi, en kristnir þó í aðalatriðum. Þessi faðir þinn er launfaðir þinn, þú ert ekki skráð sem barn viðkomandi, því miður því það hefði farið sem betur á því, því þessi einstaklingur er ekki einhverfur en hefur mjög sérhverfar tilhneigingar, svo ótrúlegar að JR stendur gapandi þegar viðkomandi tekur sig til á opinberum vettvangi og fer að segja frá. Það er engu líkt, hann er bara æði séð frá öllum hliðum. En hann misnotaði áfengi í aldarfjórðung og ég segi því við þig skítseiði einhverft og fáránlega gáfað, magnað og sérstækt að orð fá ekki lýst: haltu þig frá brennivíni bjáninn þinn því það mun ekkert gera nema eitra líf þitt og af því þú ert einhverfur þá breytist þú á vissum sviðum drykkjunnar og þeir sem eru nærstæddir verða að ´flýja hús af því að þú verður svo óþolandi erfiður og viðurstyggilegur. Ég myndi ekki vilja sjá þig nálægt mér svona stemmdan enda stendur það ekki til, því ég vil bara hafa þig eins og þú ert, án þess að taka nokkuð sem hefur vitundarbreytandi áhrif, því þannig eru yndislegur, ótúlega heillandi, einkennilega fjölgáfaður og sérlega sætur. Eiginlega svo einstakur að þú átt enga keppinauta og munt ekki eiga því það mun enginn verða eins og þú.
Hafðu gott kvöld, nótt og morgundag. Megi algóður Guð á himnum ávallt vernda þig og blessa og sjá til þess að þú haldir þínu striki og snertir ekkert sem JR er búin að tala um nema spæld egg sem ég minntist ekki á og einstaka nammi. Mundu að þú verður alltaf ótrúlega fallegur hvað mikið sem þú borðar. Í guðs nafni, Jóna Rúna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home