Kaerleikshvetjandi blogg

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Oftast þegar maður lítur til baka yfir líf manns eru menn og konur mismunandi mikilvægar. Margir eru það í mínu lífi sem skipt hafa sköpum vegna framtíðar minnar, nútíar og jafnvel fortíðar. Ég nenni ekki til að tina til mjög marga en langar til að minnast á einstakling sem að mínu mati var engill í orðsins fylltstu merking í jarðneskum líkama. Svo ótrúlega góð, falleg, gáfuð og sérstök, í raun afburðaeinstaklingur sem gat gert allt, bæði til hugar og handar, enda var faðir hennar húsgagnasmiðameistari og allt hennar fólk meira og minna mjög sérstakt. Hún var komin af Bergsætt. Þar eru einir mestu listamenn þjóðarinnar, málarar, skáld, söngvarar, smiðir, fiskimenn og bændur. En innan um og saman við, ótrúlegir drykkjumenn, menn með frábæra lygakennda frásagnagáfu, semsagt einstaklingar sem voru fyrir neðan allar hellur fyrir flestra hluta sakir en gátu jafnt sem áður innihaldið í eðli sínu eitthvað af því stórtæka sem ég taldi upp áðan. Í þessu tilviki er ég bara að tala um eina ætt en auðvitað stóð fleira fólk að þessum einstaka aðila. Til dæmis má segja að allt Kjalarnesið hafið verið skylt viðkomandi. Þar var bærinn Lykkja og þaðan voru mestar ræturnar. Þar bjuggu systkin, ótrúlega furðuleg og sérvitur, einkennilega gerð og í sjálfu sér ekki mjög heillandi, þannig að vera í sveit hjá slíku fólk fyrir afburða einstakling hlýtur að hafa verið mikil raun. En viðkomandi lét sig hafa það og var í nokkur ár vistuð á viðlíka slóðum.
Þegar Jóna Rúna nálgaðist unglingsárin fór hún í sveit í stuttan tíma, helgi og helgi, á umrædan stað og verð ég að segja að fátt í umhverfinu hreif mig, hvorki aðstæður né fólk. Þessi aðili átti mjög fjölskrúðilega æski og lagðist í lömunarveiki mjög ungur, og lá í viku fullkomalega meðvitundarlaus milli heims og helju og óttuðust margir að viðkomandi myndi látast. En svo reyndist ekki. Þetta var hún mamma mín eins og flestum er farið að renna grun í. Hún reis upp úr lömunarveikinni og átti eftir margflókið líf og hryllilega erfitt, sér í lagi fram að fimmtugu. Eftir það átti hún sorglegan feril sjúkdóma og armæðu sem aldrei buguðu hana. Í uppvextinum kom mjög snemma fram ótrúlegir listrænir hæfileikar sem mátti finna og sjá í mögnuðum listaverkum hannyrða sem mamma sinnti alla ævina. Í dag hjá okkur öllu systkinunum, og annars staðar, eru listaverkin hennar upp um alla veggi, svo ótrúlega sérstök, falleg og engu lík.
Til dæmis er ég með langan klukkustreng sem hannaður er alfarið af henni sjálfri, þar sem ég og hún sátum nótt eftir nótt, ogbiðum eftir einum drykkjumannana sem mamma var gift, og hafði lagst út og ekki látið sjá sig svo dögum skipti. Jafnframt honum, þurftum við líka að bíða eftir systur minni sem var örfáum árum eldri en ég og var illa haldin af alvarlegri drykkjusýki og öllu því sem slíku fylgir. Þessi stúlka eignaðist þrjá syni, sá elsti er læknir, næsti er í afburðamyndlistamaður og háskólanemi, en fátt veit ég um þann yngsta en vona svo sannanlega að hann hafi ekki fetað í fótspor móður sinnar og þess lífs sem hún hefur lifað, en getur ekki í dag sökum þess að hún er gjörsamlega búin að skemma sig andlega og líkamlega. Fram að tveggja ára aldri var þessi stúlka hreinn unaður gáfna og fjölhæfni, enda mikill músikant og margflókin að auki. Hún spilaði til að mynda afburðavel á gítar. Þegar hún var lítil þurfti mamma að láta hana í dagvistun á Grænuborg og einn daginn þegar hún kom til að sækja hana hafði hún breyst. Allir sem hlut áttu að máli leyndu mömmu minni hvað hafði gerst. En hún hafði augljóslega fengið höfuðhögg og skaddast á heila. Þetta breytti henni þannig að þegar á unglingsárin kom var afar auðvelt að plata hana upp úr skónum og hafa hana út í líferni sem í raun var langt frá eðli hennar og mannkostum, en lá í gegnum drykkju og allt það sem því fylgdi og var hræðilegt.
Oftar en ekki þurfti að kalla til lögreglu, ekki bara til að sinna henni, heldur líka þeim drykkjumönnum sem mamma mín því miður tengsdist tímabundið. En móðir mín var 100% reglusöm, notaði aldrei vín eða tóbak og lifði mjög grandvöru og heilbrigðu lífi sem sást best á því ða hún örvaði börnin sín til þess sama. Hún var svo góð móðir að unun er að líta til baka og minnast þess sem hún gerði bæði fyrir mig og systkini mín. Við vorum mjög mörg systkini mín og alltaf fullt af aukabörnum því að þessi elska hreinlega unni börnum, sama hvort það voru hennar eigin eða önnur. Hún til að mynda ól upp þrjú barnabörn auk þess að fóstra mörg önnur börn mismunandi lengi. Hún var til dæmis svo mikill vinur minn að ég trega hana stórlega enn, því að hún var svo heillandi, skemmtileg, fyndin og góð í sér. Til dæmis lét hún mig lesa ógrynni bóka og hlusta á öll útvarpsleikrit og flest það sem var fréttnæmt í útvarpi og síðar sjónvarpi. Hún fór með okkur krakkana í risagöngutúra og bæði tíndum við ber og blóm á leiðinni. Hún rakaði hey á bóndabæ sem var skammt frá heimili mínu og sinnti flestu því sem viðkom bæði húshaldi og öðru sem til féll utandyra. Hún var fyrsti kvenmaðurinn sem ég veit um, sem átti hjól og hjólaði um alla Reykjavík. Hjólið smíðaði afi minn og var það min stærra en gekk og gerðist því þessi elska var átanlega efnismikil og stór svo að henni veitti ekkert af að hafa risahjól til að komast leiðar sinnar. Á þessu hjóli reiddi hún okkur systkinin á víxl og elskuðum við að sitja fyrir aftan hana og þeysast áfram af auga.
Hún var mjög pjöttuð, alltaf skreytt gulli eða silfri, fallega greidd og mjög fínt klætt, í öllum litum og sást aldrei á almannafæri öðruvísi en að vera vel til höfð. Þegar ég lít til baka í líf mitt og hennar þá undrast ég mest hvernig hún fór að því að sinna börnunum sínum eins vel og raun bar vitni miðað við þá hrikalegu erfiðleika sem hún stóð frammi fyrir. Ég og hún vorum mjög miklir vinir og bárum til dæmis út blöð saman og fórum á hverjum morgni til þess arna og hlógum og göntuðumst á meðan við vorum að drífa blöðin á leiðarenda. Af því að við fórum svo snemma á fætur, þá var Jóna Rúna, af því að hún var að vaxa, dálítið þreytt um miðjan daginn, og þá bara dreif múttí hana úr fötunum, upp í rúm og lét hana hvíla sig í um klukkutíma og lesa eitthvað alveg ofboðstlega spennandi og jákvætt.
Þegar svo Jóna fullorðnaðist, varð samband hennar og mömmu, allt öðruvísi en samt í mjög nánu skyldleikasambandi við fortíðina. Við fórum til að mynda mikið út saman og keyrðum á milli staða, því þó að mamma mín væri ein fyrsta konan til að taka ökupróf á Íslandi, hjá löggu sem hún þekkti, á gerði hún lítið af því að keyra síðustu árin, eða frá því að glæsilegur bíll sem hún eignaðist og var seldur af óráðvöndnum einstakling sem tengdist mömmu sinni sem sá mestan tilgang í því að svíkja og pretta. Hann reyndi síðar á lífsleiðinni að reynast henni vel en þá var það bara of seint því mamma var farin að heilsu og það aðþrengt líkamlega að hún hafði lítinn tíma til og tækifæri til að taka við framréttum höndum. Ásgeir Bjarnþórsson listmálari, sagði við mömmu mína að hún gæti orðið besti portrett-málari á Íslandi. Hún hafði ekki áhuga á að mála, bara á hannyrðum. Klukkustrengurinn sem ég minntist á áðan var gerður fyrir mig á meðan við biðum eftir vandræðafólkinu.
Ég veit ekki hvað ég á að segja meira um hana en ég gæti talað endalaust um mömmu mína. Hún seldi egg einu sinni viku þegar hún var orðin fullorðin og farin að heilsu, bar út blöð árum saman, passaði börn árum saman, las gríðarlega mikið. Hún var í raun svo hrífandi og skemmtileg og stór og feit og undurfalleg, með kolsvart hár, liðað, kolsvartar, bogadregnar augnabrúnir, himinblá augu, tvo djúpa spékoppa og hökuskarð, og ótrúlega mikinn barm. En lamaðann fót eftir lömunarveikina sem ég minntist á. Hún hafði ótrúlegar hendur sem voru fullar af gulli og gersemum. Ó, elsku mamma mín hvað ég sakna þín mikið.

Ég verð að segja eins og er, eftir að hafa tekið inn það sem viðkomandi einhverfu viðkemur, er ég viðlíka hneyksluð og orðlaus að ég veit ekki hvað ég á að segja, en við benda þessum hálfvita á að hann má ekki eins og ég sagði í gær, nota vín eða neitt sem er vitundarbreytandi sökum þess að þessi aðili verður albrjálaður á vissum stigum drykkjunnar eða átsins, alóður, hættulegur umhverfi sínu og hrekur fólk á flótta. Að þú skulir voga þér að gera það sem þú ert að gera er henyksli og að þú skulir láta það gerast sem JRK mun láta rannsóknarlögregluna vita um er viðlíka að það ætti að taka þig úr umferð hið snarasta ásamt öllu því hyski sem málið er viðkomandi, þetta eru drulluhalar og aumingjar sem gera bara nákvæmlega það sem þeim passar þegar þeim passar. Ég nenni ekki að tína til það sem málið sannar því það bókstaflega blasir við mér allan sólarhringinn svo að mér verður flökurt og er tryllt af reiði í raun. Það sem ég ætlaði að segja við einhverfu er þetta: að útilokar er annað en að þú hafir lent út af sporinu einhvern tíma vegna þess að það er svo auðvelt að plata þig. Með því að fylla þig af víni og annarri ólyfjan er hægt að fá þig til að gera allan andskotann sem þú hefur svo þurft að taka afleiðingum af því þú ert svo einkennielga barnaleg á tiltekinn hátt, sem er svo heillandi og frábært, en það er þá bara til að elska, dá og virða en ekki til þess að þú lendir í höndunum á ræflum sem hika ekki við að misnota þig og fá þig til hluta sem eru langt frá þínu eðli.

ég mun síðar ræða gróft sifjaspell og kynferðislegt ofbeldi og ég er ekki hissa á því að þú kallir vagínuna á þér gröf. Hafðu góðan dag, Guð veri með mér í kvöld og hvetji þig áfram og mundu að þú hefur ótrúlega hæfileika og greind, ert viðlíka sérstök að leitun er að öðru eins, þú ert í raun það magnaðast í greind og hæfleikum sem Jóna Rúna hefur hitt en þó svo ótrúlega heimsk að þó farið væri um allt landið er ólíklegt að maður myndi finna jafn mikið fífl og þig, sem eins auðvelt er að svíkja, plata og draga á asnaeyrunum án þess að þú fattir það hverni verið er að fara með þig.
Í Jesu nafni, Amen,
Jóna Rúna sú eina sanna sem er sjálf blanda af algjöru ógeði og unaðsveru kærleika og ástar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home