Kaerleikshvetjandi blogg

sunnudagur, júlí 30, 2006

Ljóð

Hvar er skjól ?

Ó, Guð sem gefur líf og dauðann sjálfan,
góðvild þín er takmarkalaus og hlý.
Hvar er skjól nema í sefandi anda þínum?
svo góður, gjöfull, trúr og réttlátur.

Himneski faðir sem umvefur og örvar snauða.
fyrir náð þína grær allt sem lifir og deyr.
Í þér er mátturinn sem aldrei heftir eða meiðir,
undraráðgjafi sem gleður hrjáða af afli.

Í elsku og af trú örvar og gleður hólpna
alltaf nærri svo sterkur og góður Guð.
Án þín er allt hégómi sem heftir bága sýn
í hafsjó vandræða styrkir og græðir öll sár.

Elska þín hvetur umkomulausa og hrjáða
ótti vonleysis hverfur í ást þinni og yl.
Elsku Faðir, gef hamingju og heilindi í trú
og handleiðslu sem örvar á lífsins vegi.

Hvar er von nema í návist þinni?
Í náðarfaðmi sem kveikir ljós í myrkri.
Sem aldrei bregst en er alltaf nærri í von
ó, þú sem lýsir leið og eflir líf sem tregar.

Unaðsfriðurinn sem þú stýrir í kærleika og vissu
opnar sjón á elda þá sem þú kveikir stóra.
Þú gefur styrk sem aldrei dvín en lifir
og vissu í von og elsku sem fyllir hjartað.

Ó Faðir, sem ert skjól og styrkur sem græðir
í þér hverfa allar sorgir á braut í vissu.
Þú ástríki Drottinn sem öllu ræður
og af náð eflir þreytta sem trúa og treysta.

Hvergi er ró og kyrrð nema í faðmi þínum
opnum örmum sem styrkja hrjáða og leiða.
Hlilð himins opnast og birta lýsir leið
ljúfa sem l´liknar án orða en hvetur af styrk.

Allt í sól sem logar og lýsir veginn heim
og líkn í hverju spori gegn þér til dýrðar af náð.
Enginn tregi umlykur hólpna því skaparinn er nærri
og ástríkur færir týnda sauðinn heim í dýrð Himins.

Þú almáttugi Skapari alls sem lifir
upphefður sál mína brostna sem ákallar.
Vissan um nálægð þína og ást eflir sál
og óttinn hverfur og grátur dvín án orða.

Hvergi er skjól nema í náðararmi þínum
með náðaraugum sérð eymd og vonleysi
Af vissu hvetur og ornar hryggum
Himneski Faðir sem allt sérð og skynjar.

Skapari Himins og jarðar sem sefar sálina
sjá óvissuna sem glepur sýn og heftir allt.
Lát náðarfaðm þinn og elskuríka umhyggju
umskapa allt svo að sorgir og drungi hverfi á braut.

Höf: Jóna Rúna Kvaran, ort í júlí 2006.

Bæn

Ó faðir þú sem líknar og græðir allt
Og gleður án orða
Hvergi skjól nema hjá þér
Og vissan um leiðsögn
Allt sem blindar verður tóm
Þegar þú ert nærri
Og hvetur og örvar.
Að finna náðarfaðm þinn
Er ríkidæmi hverjum manni
Þú ert unaðsríkur og gjöfull
Í þér er friður og kærleikur
Sem aldrei dvín og ætíð umvefur.

Höf: Jóna Rúna Kvaran, ort í júlí 2006.

Ljóð

Morgunskil

Sólin ylrík umlykur allt og svo fagurlega skín
og undur opnast og veröldin logagyllt birtist.
Það eru morgunskil og himininn undurfagur
æðir um jörðina svo geislar bjartir hrífa.

Orð eru sögð en þögnin er nærri því allt logar
og í andtakt horfir á fegurð himinsdýrðar
Án gullofinnar sýnar verður allt svart
hvergi friður, ekkert skjól og allt tregablandið.

Ó að allt væri í veröldinni víðlíka fagurt
og frelsun hrjáðra óbundin af skilyrðum.
Hvergi ósætti, allt svo gleðiríkt og laust við þjáningu
án vandræða unaðsríkt og heillandi.

Það er sorglegt að sýn á gleði og von
skuli vera hverfandi í ríkidæmi allsnægta.
En vissa um breytingar er nærri og hróp aflvana
umkringja erfiðar aðstæður og hrífa.


Það er hryggilegt þegar allt er undurbjart
og glóð hvílir fagurlega allt um kring.
Engin sorg og sút sem dregur mátt úr gleðivana
skuli horft í trega á elda himins opnast í dýrð.

Hvar er réttlæti sem gefur grið og líknar döprum,
gæfurríkur undraóður sem sefar,yljar döprum.
Máttur sem hverfur aldrei en fyllir sálina þrá og trú
eftir ró hjartans án óvildar í armæðu dagsins.

Ef horft er til himinsglóðar í vissu
hverfa sorgir á braut og von ríkir og eflir.
Hvergi er skjól nema´í kyrrð andans sem efast
aldrei um trú, von og kærleika sem umvefur.

Höf: Jóna Rúna Kvaran, ort júlí 2006.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home